Námskeið

Posted in Blogg on ágúst 12th, 2011 by diverss — Be the first to comment!

Gaman að segja frá því að Kópavogs Askur sem býr á Neskaupsstað er að fara á flott helgarnámskeið hjá Alberti bróður á Egilsstöðum.

Það verður gaman að fygjast með honum þar (í gegnum bróðir minn) Virkilega flottur hundur þar á ferð.

Reynir, Dýrunn og Askur

Gangi ykkur vel Reynir og Dýrunn um helgina:)

 

Fleiri að fara á námskeið eftir helgi:

Svo eru Arí, Myrra, Sprettur og Dimma að fara á námskeið sem byrjar á Þriðjudaginn í hundaskólanum Hundalif.is fyrsti tími er bóklegur en svo er verklegt eftir það.

Það er mikill spenningur hjá mér hvernig þeim á eftir að ganga á þessu námskeiði.

Er svo rosalega glaður með hvað ég hef verið heppinn með hvolpakaupendur, allir mjög duglegir með hundana sína og eru í góðu bandi við mig.

Takk fyrir mig í bili:)

Ættbækur komnar til mín…

Posted in Blogg on ágúst 3rd, 2011 by diverss — Be the first to comment!

Þeir sem vilja geta kíkt á mig og sótt ættbókina eða boðið mér í kaffi og kleinur;)

kv. Sæþór

Ræktunarnafnið komið

Posted in Blogg on júlí 20th, 2011 by diverss — Be the first to comment!

Þá er búið að staðfesta það hjá HRFÍ að ég er komin með Kópavogs ræktun

Þannig að hvolparnir munu bera þetta nafn í framtíðinni þ.e.a.s. eins og tíkin mín heitir þá Kópavogs Dimma

Nöfn á hvolpunum

Posted in Blogg on júlí 6th, 2011 by diverss — 1 Comment so far

Allt að gerast og hvolparnir smátt og smátt að fá nöfn

Tík 1: Heitir Myrra

Tík 2: Heitir Birta

Tík 3: Heitir Assa

Tík 4: Heitir Arí

Tík 5: Heitir Dimma

Rakki 1: Heitir Sprettur

Rakki 2: Heitir Askur

Öll nöfnin komin:)

Myndir af hvolpakaupendum(fjölskyldan) og hvolpi fæ ég senda innan tíðar og set það á vefinn.

1 fór í dag

Posted in Blogg on júlí 3rd, 2011 by diverss — Be the first to comment!

Það fór einn í dag inná frábært heimili í Hafnarfirði hjá Einari og fjölskyldu

Það verður gaman að fylgjast með þeim öllum

Það fer svo síðasti hvolpurinn í vikunni norður á Akureyri:)

4 hvolpar fóru í dag á nýtt heimili

Posted in Blogg on júlí 2nd, 2011 by diverss — 1 Comment so far

Fallegu hvolparnir að yfirgefa okkur

Já, þeir eru sko heppnir hvolparnir sem komu undan Stíg og Pílu, því þeir fóru allir inná frábær heimili og yfirgáfu 4 hvolpar okkur í dag.

Þeir fóru í Mosfellsbæ, Garðabæ, Dalvík og Neskaupsstað

 

Til hamingju með nýju hvolpana ykkar:)

Posted in Blogg on júlí 1st, 2011 by diverss — Be the first to comment!

Já allt að gerast í Kópavoginum:) Allir hvolparnir rétt að fara á ný heimili.

Tík 1 Verður á góðum stað í Hafnarfirði hjá Einari og fjölskyldu

Tík 2 Verður á góðum staði á Dalvík hjá Lilju, Júlíusi og fjölskyldu

Tík 3 sem hefur fengið nafnið ASSA verður á góðum stað á Akureyri hjá Palla og Guðrúnu

Tík 4 verður á góðum stað í Garðabænum hjá Guðjóni og fjölskyldu

Tík 5 fær ekki að fara að heiman….hún verður okkar nýji fjölskyldumeðlimur :)

Rakki 1 sem hefur fengið nafnið SPRETTUR verður á góðum stað í Mosfellsbænum hjá Halldóri og fjölskyldu

Rakki 2 verður á góðum stað á Neskaupsstað hjá Dýrunni, Reyni og fjölskyldu

Vil ég óska öllum mínu flottu hvolpakaupendum innilega til hamingju með sitt val og vona að framtíðin verði góður hjá hvolpunum og að þeir verði góðir veiðihundar, fjölskylduhundar og vinir.

Það verður erfitt að missa þá frá sér því það er óhætt að segja að þetta hafi verið líflegt hér á bæ. Nóg að gera hjá okkur ef vægt er til orða tekið:)

Hlakka til að vinna með þessu frábæra fólki sem eru nú orðinir eigendur af þessum flottu hvolpum.

Allir hvolparnir koma inní miklar veiðifjölskyldur, þannig að það er mikil ánægja að vita að þeir fái að veiða töluvert mikið á hverju ári.

Get ekki sagt annað að ég hafi verið MJÖG heppinn með hvolpakaupendur og þakka ég enn og aftur fyrir okkur:)

Góðar stundir:)

kveðja Sæþór og fjölskylda

Allir hvolparnir farnir!

Posted in Blogg on júní 24th, 2011 by diverss — Be the first to comment!

Jæja gott fólk þá eru allir hvolparnir seldir og fengu því miður færri en vildu.

Ég vill þakka öllum sem höfðu samband kærlega fyrir gott spjall og frábært að sjá áhugann sem er á þessari tegund.

Á eftir að setja inn fleiri myndir fljótlega fyrir þá sem vilja fylgjast með.

Góða helgi kæru vinir

Kveðja Sæþór

Jæja, þá er dvölinni að ljúka á fæðingadeildinni

Posted in Blogg on júní 23rd, 2011 by diverss — 2 Comments

Set inn slatta af myndum og er þetta merkt eins og ég hef alltaf gert tík 1 o.s.frv.

Vona að ég hafi sett allar myndir á réttu staðina (reyndi samt að vanda mig:))

Já það er allt að gerast í hvolpamálum og mikið hringt núna og spurt og verið að pæla.

Jæja njótið þessara mynda og vonandi hjálpar þetta ykkur sem eruð ákveðin í að taka hvolp. Svo er afmæli á föstudag þá eru komnar 7 vikur:)

Tík 1

Tík 2

Tík 3

Tík 4

Tík 5

Rakki 1

Rakki 2


Enn hægt að tryggja sér hvolp

Posted in Blogg on júní 18th, 2011 by diverss — Be the first to comment!

Það er enn hægt að tryggja sér hvolp þar sem bæði kynin eru á lausu eins og er.

Áhugasömum geta bjallað á mig í síma 6902244